Greiðslulausn fyrir Android snjallsíma sem nýtir HCE og NFC tækni fyrir snertilausar greiðslur
Þróað í Android studio og nýtir þar Gradle fyrir þarfastjórnun og byggingu.
Sett upp bæði espresso fyrir end-to-end / samþættingar prófanir og robolectric / junit fyrir einingaprófanir sem keyra þarf úr skel.
Espresso prófin fara í androidTest pakkann undir :app einingunni í Android Studio og keyra má þau inni í Android studio með því að hægri smella á prófin og velja
Run 'Tests in ...'
Robolectric og hefðbundin JUnit einingapróf fara undir test í :approbolectric og þau þarf að keyra í skel með skipuninni
./gradlew test
Í einhverjum tilvikum hangir gradle daemon eftir að keyrslu lýkur með þeim afleiðingum að við keyrslu prófa kemur upp villa
No virtual machine found
eða eitthvað í líkingu við það. Þetta má leysa með því að keyra
./gradlew --stop